27.7.2007 | 11:29
Mölur eða náttfiðrildi
Tónlist | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2007 | 16:08
Bjartur í Lundúnum
Fór ásamt fríðu og jafnvel þónokkuðgóðu föruneyti á tónleika Bright Eyes í Shepherds Bush Empire í Lunúnum (þar sem rigningin er) þann 4. júlí. Af okkur sex sem fórum held ég að ég geti sagt að ég hafi skemmt mér sýnu best en almennt voru svolítið blendnar tilfinningar gagnvart karli og hljómsveitinni hans. Hann var víst reyndar eitthvað pirraður sjálfur á tónleikum og rak tánna í eitthvað drasl á sviðinu eins og sjá má í frétt Uncut. Þar má líka sjá lagalistann. Hérna eru þrjú öflug frá tónleikunum en þeir fara í mína bók sem einir af þeim betri.
Middleman:
Four Winds:
First Day of My Life:
Tónlist | Breytt 26.7.2007 kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2007 | 23:59
Sumar í Evrópu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2007 | 08:51
Ecky Thump!
Eins og marga grunaði eftir jafntefli knattspyrnulandsliðsins á laugardag við Liechtenstein varð niðurlægingin alger í Svíþjóð í gær. Einhver hafði á orði að þetta jafnaðist á við góða hryllingsmynd enda dugðu fáir aðrir í áhorf en þeir sem hafa lúmskt gaman af að láta refsa sér.
En ég hef nánast engan áhuga á knattspyrnu ,svona þannig séð, og get því yppt öxlum og sagt „bugger me“ eða „ecky thump“ eins og þetta ku hafa verið orðað í norðurhluta Englands fyrr á árum. Það vill svo skemmtilega til að þetta orðatiltæki er titill nýju plötu uppáhalds hljómsveitarinnar minnar, The White Stripes, en hún kemur út núna á næstu dögum. Ég sé mér til ánægju að hún er valin sem plata mánaðarins í Uncut og er að fá jákvæða umfjöllun á bloggum víða um heim. Titillagið, Icky Thump, lofar alla vega góðu.
Tónlist | Breytt 6.6.2007 kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2007 | 14:52
Strætó heitinn?
Heyrði viðtal við nýjan framkvæmdastjóra Strætó á morgunvakt Rásar 1 í gærmorgun. Með fullri virðingu fyrir manninum þá verð ég að segja að málflutningurinn var vægast sagt furðulegur. Enginn fókus á hugsanlega viðskiptavini og þeirra þarfir og öll áherslan á einhvern fortíðarvandræðagang. Maðurinn var í stöðugri vörn og hún var því miður ekki sannfærandi. Vonandi voru þetta byrjendamistök annars hlýtur að hylla undir endalok Strætó.
Rakst á nýlega hljómsveit sem heitir Thailand um daginn, þetta er tvíeyki frá Kaliforníu. Þau voru víst að senda frá sér fyrsta diskinn, Motorcade. Bara nokkuð áhugavert stöff og bara helvíti upplífgandi í sumarveðrinu í Reykjavík.Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2007 | 18:50
Eru ekki álverin dásamleg?
Það er á stundum sem þessum sem maður rifjar upp hvers vegna maður er ekki andvígur álverum. Fréttir sjómannadagsins um svarta skýrslu Hafró minnir á tímana þegar álverið í Straumsvík var eina álver landsins. Þegar Hafró gaf leiðbeiningar um úthlutun þá, fyrir svona 20-30 árum, var venjulega mínútu þögn á heimilinu þar sem menn hörmuðu í hljóð yfirvofandi samdrátt í lífsgæðum. Síðan álverum fjölgaði hefur smám saman dregið úr áhrifum þessara frétta. Og hvað gerist núna? Jú, krónan veikist og hlutabréfavísitalan lækkar. Geiningardeildir bankana telja þetta þó fremur léttvægt, Glitnir telur krónuna jafna sig fljótt og Kaupþing segir að áhrifin verði frekar lítil. Sjávarútvegur mun standa undir 40% af gjaldeyristekjum en hvert ætli hlutfallið hafi verið fyrir 30 árum?
Von Südenfed er óvæntur gleðigjafi í svartnættinu. Þetta er tríó sem samanstendur af Andi Toma, Mark E. Smith and Jan St. Werner. Það væri náttúrulega ekkert varið í þetta ef vinur okkar Mark E. Smith væri ekki þarna. Þetta er raftónlist með Fall-attitúdi, það getur ekki klikkað.
|
Spá því að þorskkvótinn verði ákveðinn 155 þúsund tonn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2007 | 14:32
Go! Eyjólfur...
Skortur á líkamlegu atgervi gerði það að verkum að ég horfði á landsleikinn gegn Liechtenstein (íbúafjöldi sirka 33.000) í gær. Mér fannst þetta fullkomin niðurlæging í alla staði en þjálfarinn var bara kátur. Ég hef ekki hundsvit á knattspyrnu, hef aldrei spilað hana og fylgist bara með stórmótum. Samt blasti við mér að leikur íslenska liðsins var vonlaus og fyrir hundaheppni töpuðum við ekki 4-1. Ég veit að maður á alltaf að vera jákvæður og bjartsýnn en ég er ekki viss um að ég treysti mér til að horfa á viðureignina við Svía á miðvikudaginn.
Þessa dagana er ég annars nokkuð hrifinn að nýjasta lagi The Go! Team, Grip Like a Vise. Þetta er ung hljómsveit frá Bretlandi sem var tilnefnd til Mercury verðlaunanna árið 2004. Platan kom út í tveimur útgáfum þar sem illa gekk að fá leyfi fyrir sömplum sem þau notuðu. Þetta lag minnir mig að sumu leyti á Mantronix sem ég var nokkuð ánægður með í seint á níunda áratugnum. Þeir afrekuðu m.a. að gera fyrstu plötuna sem var masteruð af DAT segulböndum í stað „reel to reel“ eins og hefðin var. Meðfylgjandi lag er af þeirri plötu sem kom út 1988.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2007 | 18:32
Listarnir farnir að fæðast
Árið mun eiga um þrjátíu daga í að vera hálfnað og Egill Harðar notar það tækifæri og tínir til 10 bestu lögin hingað til. Ástæða til að benda á þann lista, margt athyglisvert stöff þar sem klórar manni þægilega í ennisblaðið. Sjá www.egillhardar.blog.is
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2007 | 21:20
Sufjan stingur í samband
Rakst nýlega á lag sem Sufjan Stevens ku hafa sent frá sér í lok maí. Þetta líkist nátturulega engu sem ég hef heyrt með honum áður en útlendingarnir virðast bara nokkuð hrifnir. Æ, ég veit það samt ekki. Eru ekki nógu margir í þessari tegund af hjakki þó Suffi þurfi ekki að bætast í hópinn?
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 21:55
Mendicant og útvarpsblogg
Tvær drukknar stúlkur í Englandi sendu mér hlekk á MySpace síðu hljómsveitarinnar Mendicant. Önnur þeirra var reyndar búin að gefa mér disk með hljómsveitinni skömmu fyrir áramót. Þetta er gott stöff og betra en margt annað en eftir talsverða hlustun er ég þó ekki húkkaður. Tékkið t.d. á Butcher Boy í spilaranum á síðunni þeirra.
Edrú drengur í Noregi benti mér síðan á nokkuð snjallt fyrirbæri, RadioBlogClub, nokkurs konar útvarpsblogg sem gerir mönnum kleift að leita að lagi eða listamanni og skella því síðan í spilara á bloggið.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
The Moths - Valentine



