Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mánudagssatíran - Morgunverður á hafnfirsku heimili...

morgunverdurihafnarfirdi ...að afloknum íbúakosningum um stækkun álversins í Straumsvík.


Mánudagssatíran - Félagsmálaráðherra...

graffiti23665460070219 ... og jafnvel fleiri framsóknarmenn hefðu kannski átt að hafa þetta í huga á lokadögum Alþingis?

Mánudagssatíran - Ef að vinstri-græn komast til valda...

none of this will be yours ...ásamt öðrum vinstri mönnum í næstu kosningum er ágætt að fara að æfa sig að segja þetta við börnin okkar.

Ísland kjörlendi tæknibænda?

Ég les í fréttatilkynningu sem Þórður nokkur Hilmarsson (nei nokkur er ekki millinafn) skrifar undir að stöðugt stjórnarfar, öruggt umhverfi og mikið tæknilæsi almennings geri Ísland að hinum fullkomna stað fyrir gagnageymslu. Þar kemur líka fram að stjórnvöld séu kommittuð gagnvart hinum nýja og vaxandi tæknibænda-atvinnuvegi (vissi reyndar ekki að hann væri til hér en það er önnur saga).

Þetta er vægast sagt athyglisvert ef rétt er. Samkvæmt upplýsingum þá notar harðdiskabú af stærðargráðu Google álíka mikla orku og álverið í Reyðarfirði. Ef marka má þetta þurfum við verulega að íhuga að geyma eitthvað af orkunni sem við eigum og hverfa frá frekari álversframkvæmdum. Tæknibú eru miklu skemmtilegra fyrirbæri þar sem skapast áhugaverð störf, tja allavega út frá mínum bæjardyrum. Og nei, ég er enn ekki á móti Kárahnjúkavirkjun.

Tilkynninginuna má lesa hér: http://press.xtvworld.com/article17234.html.

Mánudagssatíran - Jóhannes Kjarval kl. 15:30...

gofigure2003365860522 miðvikudaginn eftir annan
í hvítasunnu árið 1919.

Það renna á mann tvær (eða fleiri) steingrímur

Þó ég hafi orðið hræddur um daginn þegar Ögmundur var að takast á við Sigurjón í Landsbankanum, þá var það ekkert í samanburði við þau ónot sem smugu upp kafloðna hryggjarsúluna á mér síðast liðinn sunnudag þegar Steingrímur J. var í Silfri Egils. Þar hafði formaður vinstri-grænna uppi mjög óhugnanlegar hótanir til þjóðarinnar um ýmislegt eins og til dæmis netlögreglu, ekki ósvipaða þeirri sem er í Kína. Þetta viðtal var í alvöru verulega krípí og sýndi fram á þörfina fyrir hægrisinnaða umhverfisverndarsinna til að komið verði veg fyrir að vg vinni einhverja sigra út á blessað umhverfið. Vinstir-grænir eru talíbanar Íslands og komist þeir til valda færist þjóðin tugi ára aftur í tímann. En, sem betur fer eru nánast engar líkur á því, þó varast skuli að sofna á verðinum.

Mánudagssatíran - Var þetta það sem Bændasamtökin héldu...

...að yrði skeggrætt á klámstefnunni á Hótel Sögu eða er þetta kannski það sem er kallað soft core? Mánudagssatíran 260207

Mánudagssatíran - Framtíðarlandið Ísland...

...eins og það mun koma ferðamönnum fyrir sjónir ef svartsýnustu spár þeirra sem mótmælt hafa virkjunum rætast. strangebrew2006091357216


Skipulagsumræða dauðans

ballardst20050112205415 Ó, mig auman hvað ég er orðinn ótrúlega þreyttur á skipulagsmálum og mótmælum vegna þeirra. Ef maður lítur til baka þá man ég varla eftir að í seinni tíð hafi mátt hrófla við steini án þess að samtök til að mótmæla framkvæmdinni hafi verið stofnuð. Þetta er í raun með ólíkindum ef maður hugsar út í það. Hver er ástæðan fyrir þessu?

Getur verið að stjórvöld, hvaða nafni sem þau nefnast, leggi sig sérstaklega fram um að kynna skipulagsbreytingar seint, illa eða ekki? Maður hefur allavega séð kvartað undan því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Ég velti reyndar fyrir mér hvernig hægt er að kynna skipulag illa öðru vísi en gera það þá ólöglega. Eru skipulagslög kannski þannig að sú kynning sem þar er gert ráð fyrir sé ófullnægjandi? Ég held reyndar ekki. Eru menn almennt á því að yfirvöld eigi kannski að endurkynna fyrirhugað skipulag svona fimm sinnum ári til upprifjunar? Nei, berum við fjandakornið ekki einhverja ábyrgð sem borgarar varðandi það að afla okkur upplýsinga?

Er kannski hugsanlegt að eina fólkið á Íslandi sem hefur hvorki hundsvit á skipulagsmálum né nokkra sýn á framtíð landsins sé a) þeir sem hafa atvinnu af skipulagsmálum, ráðgjöf eða arkitektavinnu eða b) þeir sem kjörnir eru í ríkisstjórn eða sveitarstjórnir landsins? Getur verið að það sé tilfellið? Mér finnst að minnsta kosti með ólíkindum hvað allir aðrir virðast vita þetta betur en þeir sem skipuleggja eða ráða.

Erum við ef til vill að sjá nýja erkitýpu koma fram svona svipað og þegar upparnir, skeitararnir eða pönkararnir spruttu upp? Er þetta kannski bara inni og svolítið hipp og kúl að vera á móti þessu helvítis skipulagi öllu saman? Hefur orðið til þjóðfélagsafkimi nokkurs konar skipulagsanarkistauppa, ha? Fólk svona 30-50 ára, vel menntað og upplýst og vill hafa sitt í friði. Sér alls ekki þörf á breytingum enda vill skipulagsanarkistauppinn ekki missa útsýnið sitt, er algerlega með verðmætamat nútmímans á hreinu. Er á móti bílum nema þegar hann þarf að komast á milli staða.

Ég skil auðvitað að enginn vilji fá hraðbraut í bakgarðinn hjá sér eins og vinstri-græni maðurinn í bæjarstjórn Mosfellsbæjar benti á í Mogganum í morgun. Ja, reyndar enginn nema þeir sem búa úti á landi en þar er kostur að láta þjóðveg eitt liggja í gegnum bæinn. Ég er líka alveg að ná þessum umhverfisvinkli og öllu því, þó vinur minn jarðfræðingurinn hafi sagt mér að það sé rugl að tala um að vernda gil og gljúfur um eilífð þar sem náttúran sé alltaf að breyta sér. En þegar menn mega ekki brúa ár, leggja vegi, byggja eða breyta neinu í helstu þéttbýliskjörnum landsins án þess að allt verði vitlaust, rígfullorðið fólk gráti fyrir framan skurðgröfur og þeir sem hafa komið til útlanda séu að hneykslast í hel yfir molbúahætti Íslendinga, þá flökrar að mér að of margir búi í bæjum og borgum sem vilja í raun búa í dreifbýli. Hvar eru annars allir þessir skipulagsfræðingar og arkitektar menntaðir? Á Akranesi?

En allavega, væri séns að biðja fjölmiðla um að shifta fókusnum örlítið og sýna mér vægð?


Helvítið hann Andri Snær

Ég hef nokkuð lengi verið sannfærður virkjanasinni og sjálfstæðismaður að auki. Auðvitað hef ég þó aldrei viljað virkja allar sprænur landsins, hver vill það? En nýta þessa fjandans orku sem við þó höfum hérna í útnára heimsins. Ég hef talið mig hafa haft upplýsta skoðun á Kárahnjúkavirkjun og meira að segja talið mig hafa meiri innsýn en margir þar sem ég bjó í alls sex ár á austurlandi. Þar hlustaði ég til dæmis nær daglega í svæðisútvarpinu á Smára Geirs halda fram kostum stóriðju fyrir landsfjórðunginn og miðað við það sem ég upplifði þá trúði ég honum. Þetta var fyrir 10-15 árum en þá var Hjölli Gutt virkjunarsinni og reyndar allur vinstri vængurinn. Landsbyggðin var enda þá að drepast og menn gátu keypt bóndabæi á góðum jörðum á 4 milljónir og þóttu vitlausir að eyða fé í slíkt rugl.

Síðan þetta var hefur ýmislegt gerst en markverðast kannski að Ísland komst í tísku, 101-liðið fattaði allt í einu að það er líf fyrir austan Eden og auðmenn hófu að fjárfesta í jarðnæði. Um leið urðu allir sem höfðu bara verið nokkuð hrifnir af virkjunum á móti þeim, en ekki ég, enda bý ég í 104. Núna hefur fólk sum sé atvinnu af því að mótmæla og listamenn Íslands, sem eru flestir á móti öllum framkvæmdum og skipulagsbreytingum, taka hlutverk sitt um að hafa skoðun á öllu og engu alvarlegar en undanfarna áratugi. Ég hef reyndar aldrei skilið af hverju það er sérstakt  hlutverk listamanna að gagnrýna samfélagið en það er önnur saga.

Nema hvað, þegar Andri Snær gaf út þessa bók sína, Draumalandið, þá ákvað ég að lesa hana þegar og ef ég gæti fengið hana lánaða eða gefins, bara svona til að vera á móti. Þetta fór líka allt í taugarnar á mér þetta hjal og gjörningar mis-merkilegra listamanna og hippa. Síðan gerist það um jólin að vinstrisinnaður vinur eiginkonu minnar gefur henni eintak af bókinni og ég las hana þar með. Bókin er náttúrulega 100 blaðsíðum of löng og allt það en helvítið á henni lætur mann ekki í friði. Það eru leiðinlega margir punktar í henni sem enginn sanngjarn og sæmilega skynsamur maður getur verið ósammála.

Nú eru að spretta upp óskir um álver hér og þar og alls staðar á landinu og þá gerist það að ég get allt í einu ekki verið fylgjandi þeim öllum og neyðist til að taka undir með Andra að álvershugmyndir séu eiginlega orðnar svolítið yesterday. Ekki síst í ljósi þess að á ráðstefnu fyrir jól spjallaði Niels Christian Furu, yfirmaður Cisco á Norðurlöndunum, við mig og spurði hvort ekki ætti að fara leggja þriðja ljósleiðarann til Íslands. Hann hafði nefnilega heyrt að Google væri að leita að landi með grænni, hagstæðri orku  þar sem veðurlag væri frekar í svalari kantinum (til að lækka orkukostnað við að kæla tölvustæðurnar) og öflugar gagnatengingar væru fyrir hendi. Þegar þeir finndu slíkan stað hefðu þeir í hyggju að flytja allt sitt dót þangað en því munu fylgja mörg spennandi störf í þekkingariðnaði.

Við erum með fisk og nú erum við kominn með slatta af álverum og þurfum þar með ekki að vera á nálum yfir úthlutun þorskkvóta. Er þá ekki snjallt að fara gera eitthvað annað? Ekki gott að vera með öll eggin í sömu körfunni og allt það. Og ég er farinn að hljóma eins og hippi og vinstri maður. Eða er þetta hægri stefna framtíðarinnar og þarf Sjálfstæðisflokkurinn kannski að fara hugsa meira á þessum nótum?

Helvítið hann Andri Snær er búinn að skemma þetta allt fyrir mér...

p.s. Hann hefur reyndar sér til málsbóta að búa í póstnúmeri 104.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband