25.2.2007 | 20:39
Sunnudagsblúsinn - Sufjan Stevens
Sunnudagar eru alltaf svolítið bláir, sum sé í kurteislegri merkingu þess orðs. Mér finnst alltaf svona the day after stemning á þeim, fönnið búið og hversdagurinn að bresta á af fullum þunga. Sunnudagstónlist er þar af leiðandi af sérstakri tegund.
Af fjölmörgum frábærum tónleikum síðasta árs voru tónleikar Sufjan Stevens án efa með þeim eftirminnilegri. Bekkirnir í Fríkirkjunni voru reyndar líka eftirminnilegir og sömuleiðis salernisaðstaðan en af annarri ástæðu. Ég held að Sufjan hafi einungis spilað eitt nýtt lag á tónleikunum, lagið Majesty Snowbird. Flutningur þess var einn af hápunktum tónleikanna að mínu mati. Mér skilst að lagið komi út sem singull á þessu ári en ég rakst á þessa mjög svo frambærilegu tónleikaupptöku af laginu um daginn. Það er einnig nokkrar ágætar upptökur af því á YouTube. Af marka má gæði þessa lags er hægt að láta sér hlakka til næstu plötu frá Sufjan Stevens.

Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
Sufjan Stevens - Majesty Snowbird

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.