9.3.2007 | 23:06
Helgarlögin - Aríatekknó og vit
Tækni- og vit sýningin er í gangi þessa helgina. Ágæt sýning, gómsæt sýnishorn, slatti af bjór, fínir pennar, tveir áhugaverðir básar og einn algerlega yfirdrifinn og út í hött ... sem sagt hefðbundið. Af þessu tilefni eru helgarlögin arískt tekknó. Tvö eru endurunnin Rammstein lög og tvö óendurunninn Sheep on Drugs lög.
Rammstein þekkja allir Íslendingar enda er hljómsveitinn heimsfrægust á Íslandi af öllum löndum þó það hafi reyndar eitthvað dofnað undanfarið (eru meira að segja með íslenska umfjöllun á Wikipedia). Þessi lög eru bæði af Mutter, annars vegar Sonne sem er hér endurunninn af hinum sænsku Clawfinger og hins vegar Links 234 sem er endurunnið af þeim sömu með viðkomu hjá hinum þýsku Westbam.
Sheep on Drugs, eða SOD eins og þeir eru stundum kallaðir, er á hinn bóginn herfilega illa kynnt bresk hljómsveit sem hefur aldrei náð hilli af ráði hér á landi. Þetta eru þó afar áhugaverðir einstaklingar sem hafa margt fram að færa. Þeir gerðu algerlega frábæra og tímalausa plötu árið 1993 sem heitir Greatest Hits. Hún fór samstundis á útsölu hérna heima. Þeir hafa eitthvað verið að dunda sér síðan en það hefur ekki farið hátt.

Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
Rammstein - Sonne

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.