Kvikmyndasúpan - Fáir demantar á blóðvellinum

Gæðum kvikmynda hnignar jafnt og þétt, yfir því hef ég tuðað áður. Samt heldur maður áfram að glápa í von um að sjá eitthvað nýtt. Bíóferðum fer fækkandi með auknum aldri en þegar farið er í bíó er upplifunin oftar en ekki dýr vonbrigði. Hvað segir það um kvikmynd að maður þurfi að berjast við svefninn af því maður keypti sér miða í lúxussal og sætin eru of þægileg?

Ég er búinn að sjá slatta af myndum það sem af er árinu og úr þeirri súpu eru hugsanlega þrjár sem teljast eftirminnilegar. Ég sleppi að tala um mesta ruslið þar sem ég man einfaldlega ekki eftir því, heilinn nær ekki að halda rekord yfir þær.

Blood Diamond í vip sal. Leiddist ekki beint en það var holur hljómur í þessu. Ég náði engri samúð með manninum sem fann demantinn; aðstæður hans fyrir alla atburðarrásina voru ekki eftirsóknarverðar. Hver vill til dæmis búa í þannig húsi að ef hann þarf að bjarga fjölskyldunni geti hann rifið norðurvegginn í sundur með handafli? Tja? Ég svaf ekki yfir þessari mynd en leit nokkrum sinnum á klukkuna. Ágæt meðan á henni stóð en eftir á að hyggja fremur slöpp.

Little Miss Sunshine var aftur á móti mynd sem vakti trú manns á kvikmyndum á ný. Algerlega frábær þrátt fyrir nokkra framvinduhnökra og ósvaraðar spurningar. Nautnalegar persónur og boðskapur í þokkabót. Það var reyndar athyglisvert hluti myndarinnar var spilaður með texta úr myndinni í næsta sal. Gerði furðulega hluti fyrir heilann.

Lét blekkjast af vinsældarlista og tók The Sentinel . Án efa dapurlegasta kvikmyndamóment ársins. The Queen var svo sem ekki slæm en ég á bágt með að rifja upp efniviðinn svona eftir á. Það var vissulega fyndið að sjá hvað Kalli er uppburðarlítið og hvað þetta er allt eitthvað mikið antík, en þar fyrir utan forgettable. The Departed er skemmtileg og ég hefði viljað ná henni í bíó en það tókst ekki. Hressandi og uppörvandi ofbeldi á ferðinni þar ásamt ágætri fléttu.

Skemmtilegasta og óvæntasta myndin sem ég hef séð á þessu ári er þó Children of Men. Algerlega frábær og bresk í góðum skilningi þess orðs. Gefur sig út fyrir að vera vísindaskáldsaga en er það í raun ekki. Stendur upp úr öðru sem er í boði á myndbandaleigunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Talandi um kvikmyndir, mér fanst Blood Diamond drullu góð, Little Miss Sunshine  frábær en það er ekkert sem toppar Napoleon Dynamite Þvílíka snilldin. (nema kanski Yellowbeard) .

kv Ingþór

Ingþór (IP-tala skráð) 14.3.2007 kl. 20:53

2 Smámynd: Óskar J. Sandholt

Bloody Hell, ég hef ekki séð Napóleon en hin er klassík. Fer þó ekki ofan af því að Blood Diamond hafi verið að sumu leyti misheppnuð...

Óskar J. Sandholt, 17.3.2007 kl. 20:20

3 identicon

Napoleon Dynamite ... júgottbísjittíngmí ... jæja, dansinn var þó góður. Annars verð að taka undir með Óskari með Children of Men. Algjör snilld... sérstaklega þar sem ég ætlaði nú bara að horfa á hana með hálfum huga. Það breyttist fljótt. Annars sá ég 300 í bíó um daginn. Skemmtileg bardagamynd þó Persar fái full harða útreið þarna. Lét mig meira að segja hafa það að skrifa smá söguskýringu á Mjölnisspjallið

Haraldur Dean Nelson (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband