17.3.2007 | 20:03
Helgarlögin - Spilunarlisti Arena fyrir apríl 07
Arena mun vera besta tímarit í heimi í flokki sem skrifa um karllæg áhugaefni. Það stendur allavega alltaf í blaðinu og varla eru þeir að prenta einhverja helvítis lygi? Ég kann vel við þetta tímarit en þar má margt forvitnilegt um hitt og þetta sem er í gangi. Þeir birta til dæmis lista yfir tónlist sem er þess virði að eyða laununum sínum í. Maður er nú kannski ekki alltaf sammála en þar eru þó oft ágætar ábendingar um stöff sem er að koma upp á yfirborðið. Á spilunarlista þeirra fyrir apríl kennir ýmissa góðra grasa svo við höfum hann í spilun þessa helgina og jafnvel lengur:
LCD Soundsystem – North American Scum
Klaxons – Gravity‘s Rainbow (Van She‘s Remix)
Tracy Thorn – It‘s All True
Grinderman – Get It On
!!! – All My Heroes Are Weirdos
Air – Napalm Love
MSTRKRFT – Paris
Enter Shikari – Sorry You‘re Not a Winner
Good Shoes – Never Meant To Hurt You
LCD Soundsystems framleiðir danstónlist fyrir fullorðna en þetta er náungi langt genginn í fertugt og helvíti skemmtilegur. Klaxons er ung gleðipoppsveit sem er mjög vinsæl að verða. Þetta lag þeirra sem hljómaði aðeins í fyrra er hér í nær óþekkjanlegri útgáfu á safnplötu Modular Records sem eiga heimkynni sín í Ástralíu. Tracy Thorn var einu sinni í Everything But The Girl en þetta lag er eiginlega mjög gamaldags house eins og var vinsælt fyrir sirka 10-15 árum. Grinderman er nýja hljómsveitin hans Nick Cave en þetta er svipað stöff og hann hefur verið að gera með the Bad Seeds undanfarið, enda eru þetta allt gamlir kunningjar þaðan. !!! (eða chk chk chk) eins og þetta mun vera sagt eru fönk-pönkarar frá Ameríku sem eru bara nokkuð hressilegir og sækja svolítið mikið í harðari danstónlist frá sirka 1990. Frakkarnir í Air eru að feida út í rólegheitunum en þetta er orðið svo kósí hjá þeim að manni er hætt að standa á sama. MSTRKRFT mun vera hljómsveit sem byggir á grunni hálf-rokksveitar sem hét Death From Above 1979 en þetta lag mun hafa verið á ferli lengi á netinu. Enter Shikari eru á Jakobínurínu aldrinum og hljóma jafnvel í áttina og Good Shoes eiga að vera svona næsta indí big thing ef marka má orðróminn.
LCD Soundsystem - North American Scum



Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.