1.4.2007 | 17:18
Sunnudagsblúsinn - Að loknum álverskosningum
Margir sigruðu í kosningunum um framtíð álversins í Straumsvík. Denni telur upp nokkra helstu hópana á blogginu sínu. En þar sem eru sigurvegarar þar eru einnig taparar og þeir hafa nú gullið tækifæri til að velta sér upp úr eymdinni. Það er alltaf hægt að stóla á John Lydon ef mann vantar neikvæðan félaga til að ýkja upp þunglyndið. Hann hélt einu sinni úti hljómsveit sem hét Public Image Ltd. Átti góða spretti þar eins og með plötunni Album árið 1986. Hún kom út á þeim tímum þegar þörf var á að taka fram að umslagið væri búið til í Vestur-Þýskalandi. Lagið Rise af henni er einmitt dásamleg blanda af þunglyndi og von sem er nákvæmlega tilfinningin sem sumir finna fyrir eftir úrslitin í Hafnarfirði. Anger is an Energy...
PIL - Rise



Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.