Lög til að kjósa við

Styttist í kosningar og Geir er kominn á skyrtuna. Flokkurinn búinn að opna kosningaskrifstofu handan götunnar og stemningin að kvikna. Það er líka mikið af skemmtilegum hljómsveitum að gefa út plötur um þessar mundir. Hér eru sýnishorn af nokkrum spennandi plötum sem eru komnar eða alveg að koma út.

Það eru náttúrulega tíðindi að Dinosaur Jr eru að gefa út fyrstu plötuna með upphaflegu liðsmönnunum síðan Bug kom út fyrir sirka 20 árum að ég held. Platan mun heita Beyond og miðað við það sem maður heyrir þá þróast þeir ekki mikið, sem betur fer. Músíkin eins og á gullaldarárunum og jafnaldri minn J. Mascis nákvæmlega eins nema orðinn gráhærður.

Bræðurnir og frændurnir í Kings of Leon eru að gefa út nýtt stöff sem hljómar gríðarlega vel. Verulega sannfærandi og góð breyting hjá þeim. Platan þeirra, Because of the Times, kom út fyrir um viku og þykir bara helvíti góð.

CocoRosie héldu tónleika hérna heima fyrir um ári sem ég sá reyndar ekki. Þetta eru systur sem eru að gera ýmislegt skemmtilegt og óhefðbundið. Ég sé að platan, The Adventures of Ghosthorse and Stillborn, sem þetta lag er tekið af fær fimm stjörnur í Mogganum í dag.

Low telst líka til Íslandsvina og sendi nýlega frá sér plötuna Drums and Guns. Hún fær misjafnar viðtökur en helsta nýjungin á henni er að búið er að fjárfesta í trommuheila. Mér finnst þetta bara gott stöff hvað sem spekingarnir segja.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband