Að kaupa bjór í Salt Lake

IMG_0191 Það er ekki laust við að ég eigi erfitt með að skilja Kanann. Þegar ég settist inn á barinn hér á hótelinu eftir strangan dag og bað um bjór, varð ég fyrst að sækja um félagsaðild að einkaklúbbnum Destinations. Ég fékk inngöngu og er nú með gilt skírteini sem rennur út í maí. Í mormónafylkinu Utah er að sögn bannað að drekka en það er hægt að komast fram hjá því með  því að vera í klúbbi.

Í ljósi gríðarlega opinna skotvopnalaga og hörmulegra atburða í Virginia Tech, Columbine og fleiri stöðum er þetta því miður ekki fyndið heldur frekar tragískt. Hérna getur maður sem sagt drepið aðra í skjóli laga um sjálfsagaðan rétt til sjálfsvarnar en ef maður vill drepa sjálfan sig (á mun mannúðlegri hátt) þarf maður að vera meðlimur í klúbbi. Ég veit ekki af hverju mér verður hugsað til vinstri grænna...?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, það er öll vitlausan eins líkt og kerlingin sagði forðum!
Ég ætlaði nú bara að óska þér gleðilegs sumars og þakka fyrir veturinn en þetta er skrifað kl. 9 að morgni sumardagsins fyrsta og ég var að enda við að flagga í rjómablíðunni hér fyrir austan!

Kveðja, Sverrir

P.S. Nú eru aðeins 23 dagar og 11 klst. þar til úrslitakeppni Eurovision hefst samkvæmt opinberri heimasíðu keppninnar og í augnablikinu (og reyndar síðustu vikur) er það Bosnía sem höfðar mest til mín. S.G.

Sverrir (IP-tala skráð) 19.4.2007 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband