23.4.2007 | 19:29
Spilunarlisti Arena fyrir maímánuð
Tímaritið sem allt veit, Arena, hefur gefið út hvaða plötur það telji við hæfi að hafa við höndina í maí.
Þar er fyrst á blaði plata hljómsveitarinnar Modest Mouse, We Were Dead Before The Ship Even Sank en þeir hafa vakið nokkra athygli undanfarið fyrir að hafa ráðið gamla Smiths-gítarleikarann Johnny Marr til starfa. Dashboard var fyrsti singullinn af þessari plötu.
Soulsavers eru að gefa út It‘s Not How Far You Fall, It‘s The Way You land en þeir voru líka að ná í einn gamlan, Mark Lanegan úr Screeming Trees. Kingdoms of Rain þykir endurspegla stemningu viskís, sígaretta og stíflaðra lungna.
Hin sænska Robyn er að gefa út samnefnda plötu á eigin merki Konichiwa. Konichiwa Bitches mun vera fyrsti singullinn af henni.
House of Pain klassíkerinn, Jump Around, er tekinn af safni sem heitir Hip Hop Classics (!) og inniheldur gullaldarslagara sem og lög sem ekki er hægt að hlusta á lengur. Þetta lag eldist þó með reisn.
Að lokum er síðan lag með Mark Ronson sem er breskur plötusnúður er þótt hefur efnilegur endurhljóðblandari. Hann er að gefa út sínar útgáfur af þekktum lögum á plötunni Version. Britney Spears lagið Toxic er eitt þeirra.
Modest Mouse-Dashboard



Athugasemdir
Mark Ronson er náttúrulega snillingur og það virðist vera að allt sem Svíar gera þessa dagana sé snilldin ein. Modest Mouse platan nýja er ágæt en samt ekkert spes finnst mér.
Egill Harðar, 23.4.2007 kl. 21:20
Soulsaver platan öll er geðveik - langt síðan ný músík hreyfði svona við mér! Kingdom of Rain er reyndar gamalt Lanegan lag, endurupptekið þarna. Stóns koverið No Expectation á plötunni er einnig stórgott finnst mér. Það er reyndar næstum óþekkjanlegt.
Mark Ronson hugnast mér ekki. Mick pabbi hans hugnast mér betur, sólóplöturnar hans tvær eru vel yfir meðallagi í mínum glamfræðum.
Skarpi, 27.4.2007 kl. 15:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.