Háls, nef og eyru

Það er alltaf fyrirkvíðanlegur andskoti að fara til háls, nef og eyrnalækna. Þetta eru svo sem yfilreitt ágætis lið sem sinnir þessum störfum en biðstofurnar þeirra eru alltaf eins og fordyri helvítis (Þráinn vinur minn sagði mér reyndar um daginn að páfinn hafi lagt fordyrið niður í tilefni af 80 ára afmæli sínu?). Þar eru samankomin óhamingjusömustu börn landsins og ekki eitt einasta þeirra getur setið kyrrt, þagað eða haldið fyrir grímuna á sér þegar það hnerrar eða hóstar.

Ég þurfti að heimsækja eyrnalækni í vikunni og ég er í raun hissa að ég sé á lífi eftir vistina á biðstofunni. Sitt hvoru megin við mig reyndu foreldrar að fá börn til að gleyma eyrnabólgu með því að lesa fyrir þau (sitt hvora bókina að sjálfsögðu) en hljóðhimnan var áreiðanlega hvellsprungin í þeim báðum. Þau hlustuðu að minnsta kosti ekki. Sirka 10 krakkar hlupu stanslaust fram hjá mér, selflytjandi púsluspil og blöð og annað hvort hnerruðu eða hóstuðu brosandi framan í mig. Þau sem slepptu því struku andlitinu við skálmarnar á buxunum mínum þannig að jakkafötin mín voru orðin þverröndótt að neðan eins og her snigla hefði skriðið yfir mig. Nokkur áttu foreldra sem voru greinilega útbrunnir eftir of margar andvökunætur og þau voru verst, þar sem flest targettuðu mig sem vænlegt, óþreytt fórnarlamb sem gæti hugsanlega dreift athygli þeirra frá hlustaverknum. Vel þjálfaður „keep away“ svipurinn minn dugði ekki til að halda þeim í nema 15 sentímetra fjarlægð. Það var gríðalegur léttir þegar læknirinn kallaði loks á mig og sprautaði mig í hálsinn.

Mér detta af einhverri ástæðu alltaf Kings of Leon í hug þegar ég hugsa um háls, nef og eyrna. Nýja platan þeirra, Because of the Times, er algerlega frábær og gæti hreinlega verið sú besta frá þeim hingað til. Lagið Charmer sem fylgdi hérna með fyrri færslu er á replay þessa dagana og hér er annað ekki síðra, On Call. Að auki fylgir hérna lagið sem kom mér á bragðið, Molly‘s Chambers, instant klassík og eitt alskemmtilegasta lag ársins 2005.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta skýrir ýmislegt. Þ.e. þær fréttir að páfinn ráði fordyri helvítis og hafi ákveðið að leggja það niður. Mér hefur reyndar alltaf fundist hann vera meira í þá áttina en hina. Og auðvitað hárrétt á hans "hei-lag-leika" að leggja þetta dót niður. Hefur örugglega bara tafið umferðina þar neðra hvort eð er. 

H D Nelson (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband