Íslendingur lemur Dana (væntanlega)

gunnarnelson Gunnar L. Nelson, sonur Halla vinar míns, mun berjast á adrenalínmóti í Köben næsta laugardag (5. maí). Ég hef afar lítið vit á þessu en mér skilst að drengurinn sé einn efnilegasti bardagamaður landsins. Og nei, hann er ekki leikarinn og tónlistarmaðurinn geðþekki, sonur Ricky Nelson, þetta er sonur Haraldar járnkrumlu.

Svo vitnað sé í föður hans: „Andstæðingur Gunnars í Kaupmannahöfn, John Olesen, er ekkert lamb að leika sér við. Hann er fjórum árum eldri og býr yfir mun meiri keppnisreynslu í MMA. Í nýlegu viðtali nefnir UFC keppandinn Martin Kampmann hann sem efnilegasta MMA mann frá Kung Fu Toa klúbbnum í Danmörku. Aðspurður segir Kampmann að það séu margir efnilegir MMA menn í Danmörku en nefnir aðeins nafn John Olesen sérstaklega og segir mönnum að fylgjast með honum í framtíðinni því Olesen muni örugglega láta að sér kveða í MMA heiminum. Fari Gunnar með sigur af hólmi mun það því eflaust vekja nokkra athygli. Það er alveg ljóst að þetta verður mjög erfiður bardagi fyrir Gunnar en okkar maður er vel undirbúinn, hvergi banginn og ætlar sér ekkert nema sigur.“

Bardaginn fer fram í Dansborghallen, Sollentuna Alle 2, 2650 Hvidovre (www.adrenalinesports.dk) svona ef menn skildu vera í Köben og ekki hafa hugmynd um hvað þeir eigi að gera þennan dag.

Þegar Gunnar L. Nelson gengur í hringinn mun lag eða útsetning Sigur Rósar á Dánarfregnum og jarðarförum vera leikið undir. Skoðið kallinn t.d. á vefsvæði Mjölnis.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband