Kvöld að loknum kjördegi

Jæja, maður hefur verið heldur daufur í þessu undanfarið enda mikið að gera og svefninn ekki upp á það besta á meðan ennþá er möguleiki á myndun vinstri stjórnar. Miðað við allt og allt sýnist mér þó að vinstra liðið sé búið að stinga hvert annað í bakið eins og venjulega þannig að slíkt stjórnarmynstur sé ekki í spilunum lengur. Þetta endar í Sjálfstæði og Samfylkingu sem verður góð ríkisstjórn, held ég.

Menn keppast við að covera Joy Division þessa dagana enda er verið að frumsýna myndina Touching from a Distance á Cannes hátíðinni sem er nýlega hafin. The Killers stóðu sig frekar illa, að mínu mati í sínu coveri, en ég rakst á cover með vini okkar James Murphy í LCD Soundsystem af lagi sem var held ég á fyrstu Joy Division ep plötunni. Þetta er lagið No Love Lost og Murphy gerir þetta smekklega.

Berið saman útgáfurnar og gleðjist.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband