23.5.2007 | 18:06
Stjórnin í höfn
Jæja, þá geta menn hætt að halda niðri í sér andanum. Búið að mynda stjórn og tryggja það að lífskjör haldi áfram að batna hérna á fangaeyjunni. Vinstri grænir geta snúið sér að því sem þeir eru bestir í, að vera á móti, og Frjálslyndir geta lagt sig niður í rólegheitunum. Framsókn ætlar hins vegar greinilega að flytja út á land og það er bara ágætt.
Nýr heilbrigðisráðherra hefur litið dagsins ljós, Guðlaugur Þór Þórðarson. Konan sem sat við hliðina á mér þegar þetta var tilkynnt í beinni, sagði að reynsla hans eftir brunaslysið muni áreiðanlega hjálpa honum í starfi. Verð að játa að ég skildi það komment ekki alveg en á eftir að hugsa þetta betur. Rétt að taka fram að ég var staddur á Landsspítalanum þegar þetta var. Til heiðurs nýjum heilbrigðisráðherra (sem brosti eins og skóladrengur eftir tilnefninguna) er rétt að pósta kóveri The Editors af lagi Gorillaz, Feel Good inc.
The Editors - Feel Good Inc.



Athugasemdir
blessaður kjúklingur eða var það sjúklingur
við alla viljum endilega senda þér þessa slóð:
http://www.myspace.com/mendicantmusic
kv
iris og alla a fylleríi því Ummi er í Danemark
iris og alla (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 21:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.