Go! Eyjólfur...

Skortur á líkamlegu atgervi gerði það að verkum að ég horfði á landsleikinn gegn Liechtenstein (íbúafjöldi sirka 33.000) í gær. Mér fannst þetta fullkomin niðurlæging í alla staði en þjálfarinn var bara kátur. Ég hef ekki hundsvit á knattspyrnu, hef aldrei spilað hana og fylgist bara með stórmótum. Samt blasti við mér að leikur íslenska liðsins var vonlaus og fyrir hundaheppni töpuðum við ekki 4-1. Ég veit að maður á alltaf að vera jákvæður og bjartsýnn en ég er ekki viss um að ég treysti mér til að horfa á viðureignina við Svía á miðvikudaginn.

The_Go_Team_Accelerator_2004 Þessa dagana er ég annars nokkuð hrifinn að nýjasta lagi The Go! Team, Grip Like a Vise. Þetta er ung hljómsveit frá Bretlandi sem var tilnefnd til Mercury verðlaunanna árið 2004. Platan kom út í tveimur útgáfum þar sem illa gekk að fá leyfi fyrir sömplum sem þau notuðu. Þetta lag minnir mig að sumu leyti á Mantronix sem ég var nokkuð ánægður með í seint á níunda áratugnum. Þeir afrekuðu m.a. að gera fyrstu plötuna sem var masteruð af DAT segulböndum í stað „reel to reel“ eins og hefðin var. Meðfylgjandi lag er af þeirri plötu sem kom út 1988.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband