Eru ekki álverin dásamleg?

Það er á stundum sem þessum sem maður rifjar upp hvers vegna maður er ekki andvígur álverum. Fréttir sjómannadagsins um svarta skýrslu Hafró minnir á tímana þegar álverið í Straumsvík var eina álver landsins. Þegar Hafró gaf leiðbeiningar um úthlutun þá, fyrir svona 20-30 árum, var venjulega mínútu þögn á heimilinu þar sem menn hörmuðu í hljóð yfirvofandi samdrátt í lífsgæðum. Síðan álverum fjölgaði hefur smám saman dregið úr áhrifum þessara frétta. Og hvað gerist núna? Jú, krónan veikist og hlutabréfavísitalan lækkar. Geiningardeildir bankana telja þetta þó fremur léttvægt, Glitnir telur krónuna jafna sig fljótt og Kaupþing segir að áhrifin verði frekar lítil. Sjávarútvegur mun standa undir 40% af gjaldeyristekjum en hvert ætli hlutfallið hafi verið fyrir 30 árum?

vonfed_pre_1 Von Südenfed er óvæntur gleðigjafi í svartnættinu. Þetta er tríó sem samanstendur af Andi Toma, Mark E. Smith and Jan St. Werner. Það væri náttúrulega ekkert varið í þetta ef vinur okkar Mark E. Smith væri ekki þarna. Þetta er raftónlist með Fall-attitúdi, það getur ekki klikkað.


mbl.is Spá því að þorskkvótinn verði ákveðinn 155 þúsund tonn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já sannarlega ánægjulegt að við skulum ekki vera háð fiskveiðunum á sama hátt og áður og nú er kannski lag að draga enn frekar úr veiðum og athuga hvort þorskstofninn nær sér! Set samt spurningamerki við áhrif álveranna, þeirra hlutur í gjaldeyristekjum þjóðarinnar er ekki nema 13% . . . Hilsen, Elsa

Elsa Þórey Eysteinsdóttir (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband