Strætó heitinn?

Heyrði viðtal við nýjan framkvæmdastjóra Strætó á morgunvakt Rásar 1 í gærmorgun. Með fullri virðingu fyrir manninum þá verð ég að segja að málflutningurinn var vægast sagt furðulegur. Enginn fókus á hugsanlega viðskiptavini og þeirra þarfir og öll áherslan á einhvern fortíðarvandræðagang. Maðurinn var í stöðugri vörn og hún var því miður ekki sannfærandi. Vonandi voru þetta byrjendamistök annars hlýtur að hylla undir endalok Strætó.

Rakst á nýlega hljómsveit sem heitir Thailand um daginn, þetta er tvíeyki frá Kaliforníu. Þau voru víst að senda frá sér fyrsta diskinn, Motorcade. Bara nokkuð áhugavert stöff og bara helvíti upplífgandi í sumarveðrinu í Reykjavík.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband