Ecky Thump!

Eins og marga grunaði eftir jafntefli knattspyrnulandsliðsins á laugardag við Liechtenstein varð niðurlægingin alger í Svíþjóð í gær. Einhver hafði á orði að þetta jafnaðist á við góða hryllingsmynd enda dugðu fáir aðrir í áhorf en þeir sem hafa lúmskt gaman af að láta refsa sér.

050601_whitestripes En ég hef nánast engan áhuga á knattspyrnu ,svona þannig séð, og get því yppt öxlum og sagt „bugger me“ eða „ecky thump“ eins og þetta ku hafa verið orðað í norðurhluta Englands fyrr á árum. Það vill svo skemmtilega til að þetta orðatiltæki er titill nýju plötu uppáhalds hljómsveitarinnar minnar, The White Stripes, en hún kemur út núna á næstu dögum. Ég sé mér til ánægju að hún er valin sem plata mánaðarins í Uncut og er að fá jákvæða umfjöllun á bloggum víða um heim. Titillagið, Icky Thump, lofar alla vega góðu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, ekki nefna þetta gengi íslenska landsliðsins ógrátandi. Reyndar lýst mér vel á þessa hugmynd hér.

Halli Nelon (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband