27.7.2007 | 11:29
Mölur eða náttfiðrildi
Lag með hljómsveit er heitir hinu vonlitla nafn The Moths hefur verið fast í höfðinu á mér síðan í vor. Að því er ég kemst næst hefur hljómsveitin ekki samning og þegar ég í var í Lundúnum fyrir nokkru var ekkert til með þeim. Það má finna nokkur lög með þeim hér og þar en að öðru leyti er frekar lítið að upplýsingum að finna á netinu um þessa drengi. Mér skilst þó að þetta sé tríó frá Bretlandi og það eigi ekki að rugla þeim við eldri bandaríska hljómsveit með sama nafni, þetta er MySpace síðan þeirra. Nema hvað Valentine er frábært lag.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
The Moths - Valentine



Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.